138. löggjafarþing — 65. fundur, 30. des. 2009.
ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
76. mál
Frú forseti. Það er óhæfa að bera lög Alþingis undir aðrar þjóðir eins og hér var gert. Alþingi Íslendinga setti lög um þetta mál í sumar sem eru skömminni skárri en sá óskapnaður sem er hér til umfjöllunar. Því tel ég rétt að vísa málinu frá. Lög skulu standa. Ég segi já.