Frestun á skriflegum svörum.
Borist hafa bréf frá félags- og vinnumarkaðsráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 998, um samræmda móttöku flóttafólks, frá Andrési Inga Jónssyni, á þskj. 742, um skipulag og stofnanir ráðuneytisins, frá Diljá Mist Einarsdóttur, á þskj. 982, um viðbrögð við vanvirðandi framkomu af hálfu ráðherra eða ráðuneytisstjóra og sálfræðiþjónustu fyrir starfsmenn ráðuneyta, frá Helgu Völu Helgadóttur og á þskj. 793, um stöðu heimilislauss fólks, frá Lenyu Rún Taha Karim.
Einnig hafa borist bréf frá heilbrigðisráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 1042, um niðurgreiðslu sálfræðiþjónustu, frá Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur og á þskj. 1051, um lækna, frá Þórunni Sveinbjarnardóttur.