148. löggjafarþing — 67. fundur,  4. júní 2018.

almennar stjórnmálaumræður.

[19:31]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Umræðurnar skiptast í þrjár umferðir og hefur hver þingflokkur átta mínútur í fyrstu umferð, fimm mínútur í annarri og fimm mínútur í síðustu umferð.

Röð flokkanna verður þessi í öllum umferðum: Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkur, Miðflokkurinn, Vinstrihreyfingin – grænt framboð, Píratar, Framsóknarflokkur, Flokkur fólksins og Viðreisn.

Fyrir Samfylkinguna tala Oddný G. Harðardóttir, 6. þm. Suðurk., í fyrstu umferð, Ágúst Ólafur Ágústsson, 3. þm. Reykv. s., í annarri umferð og í þriðju umferð Guðjón S. Brjánsson, 6. þm. Norðvest.

Ræðumenn Sjálfstæðisflokksins eru Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, í fyrstu umferð, Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra, í annarri en í þriðju umferð Bryndís Haraldsdóttir, 2. þm. Suðvest.

Fyrir Miðflokkinn tala Gunnar Bragi Sveinsson, 6. þm. Suðvest., í fyrstu umferð, Bergþór Ólason, 4. þm. Norðvest., í annarri en í þriðju umferð Þorsteinn Sæmundsson, 10. þm. Reykv. s.

Fyrir Vinstrihreyfinguna – grænt framboð tala Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, 7. þm. Norðaust., í fyrstu umferð, Ólafur Þór Gunnarsson, 11. þm. Suðvest., í annarri og í þeirri þriðju Steinunn Þóra Árnadóttir, 6. þm. Reykv. n.

Ræðumenn Pírata eru í fyrstu umferð Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, 4. þm. Reykv. s., í annarri Smári McCarthy, 10. þm. Suðurk., og Halldóra Mogensen, 11. þm. Reykv. n., í þriðju umferð.

Ræðumenn Framsóknarflokksins eru Willum Þór Þórsson, 9. þm. Suðvest., í fyrstu umferð, Þórunn Egilsdóttir, 4. þm. Norðaust., í annarri og í þriðju Ásgerður K. Gylfadóttir, 7. þm. Suðurk.

Fyrir Flokk fólksins tala Inga Sæland, 8. þm. Reykv. s., í fyrstu umferð, í annarri Ólafur Ísleifsson, 10. þm. Reykv. n., og í þeirri þriðju Karl Gauti Hjaltason, 8. þm. Suðurk.

Fyrir Viðreisn tala í fyrstu umferð Þorsteinn Víglundsson, 7. þm. Reykv. n., í annarri Hanna Katrín Friðriksson, 7. þm. Reykv. s., og í þriðju umferð Þorgerður K. Gunnarsdóttir, 7. þm. Suðvest.