148. löggjafarþing — 68. fundur,  5. júní 2018.

breyting á ýmsum lögum á sviði samgöngu-, fjarskipta-, sveitarstjórnar- og byggðamála.

389. mál
[13:38]
Horfa

Líneik Anna Sævarsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Ég styð þessa breytingartillögu, en nefndin hefur fengið ábendingu um að yfirfara orðalag þannig að ég óska eftir að málið gangi til nefndar á milli umræðna.