144. löggjafarþing — 68. fundur, 18. feb. 2015.
lokafjárlög 2013.
528. mál
Virðulegi forseti. Ég tel reyndar að það sé ágætt að halda þessu aðskildu og að þetta komi fram í sérstöku fylgiskjali þar sem það færist yfir á næsta ár. Ég geri ráð fyrir að það séu skýringar sem hægt er að kalla eftir í meðförum nefndarinnar þegar menn rekast á einstaka liði þar sem eitthvert misræmi er á milli þess sem birtist í lokafjárlagafrumvarpinu og því sem fram hefur komið í ríkisreikningi, en ég þekki því miður ekki alla einstöku liðina.