meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.
Hæstv. forseti. Ég þakka þingmanninum prýðisgóða ræðu þar sem hann leitaði aðeins til upphafsins, hvernig hlutirnir minna hann á aðra umræðu sem fór fram hér fyrir nokkrum árum. Ég velti fyrir mér hvað það var sem gerðist þegar ákveðið var að fara í þessa vegferð með aflandskrónur. Það átti að fara fram útboð fyrst í október 2015 en það varð ekki að veruleika fyrr en 25. maí 2016. Ég velti fyrir mér hvort þingmaður geti svarað því hvað var eiginlega byrjað að gerast á þessum tímapunkti.