varamaður tekur þingsæti.
Borist hefur svohljóðandi bréf frá hv. 9. þm. Norðaust., Birki J. Jónssyni, dagsett þann 14. febrúar sl.:
„Þar sem ég get ekki af persónulegum ástæðum sótt þingfundi á næstunni óska ég eftir því, með vísan til 2. mgr. 53. gr. þingskapa, að 4. varamaður á lista Framsóknarflokksins í Norðaust., Ólafur Níels Eiríksson vélvirki, taki sæti mitt á Alþingi á meðan en 1.–3. varamaður á listanum, Þórarinn E. Sveinsson, Katrín Ásgrímsdóttir og Svanhvít Aradóttir, eru forfölluð að þessu sinni.“
Kjörbréf Ólafs Níelsar Eiríkssonar hefur þegar verið rannsakað og samþykkt en hann hefur ekki áður tekið sæti á Alþingi og ber því að undirrita drengskaparheit að stjórnarskránni.
[Ólafur Níels Eiríksson, 9. þm. Norðaust., undirritaði drengskaparheit um að halda stjórnarskrána.]