140. löggjafarþing — 72. fundur,  13. mars 2012.

afbrigði um dagskrármál.

[15:10]
Horfa

Pétur H. Blöndal (S):

Frú forseti. Ég samþykki það að veita afbrigði fyrir þessu máli en ég skil ekki af hverju það þarf afbrigði. Þetta er mál sem lá fyrir fyrir löngu og ég vil benda ráðuneytinu og hæstv. fjármálaráðherra á að það eru til ýmiss konar forrit sem minna menn á hluti þegar þeir geta ekki munað þá.