133. löggjafarþing — 74. fundur, 20. feb. 2007.
stofnun hlutafélags um Orkubú Vestfjarða og Rafmagnsveitur ríkisins.
570. mál
Forseti getur tekið undir að það er réttmæt ósk sem fram hefur komið frá hv. þingmanni. Forseti sér á töflu sinni að báðir þessir ráðherrar, hæstv. fjármálaráðherra og hæstv. iðnaðarráðherra, eru í húsinu og mun gera gangskör að því að þeir verði viðstaddir umræðuna. Í trausti þess mun forseti halda umræðunni áfram.