Fjárþörf Samkeppnisstofnunar.
viðskiptaráðherra (Valgerður Sverrisdóttir) (F) (andsvar):
Hæstv. forseti. Svara eða svara ekki því ég tel ekki að þingsköp Alþingis heimili það að ég fari að tala í smáatriðum um frumvarp sem er ekki komið fram. Hv. þingmaður verður að hafa biðlund þar til þessum frumvörpum verður dreift, þau komi til þingsins og verði tekin formlega á dagskrá.
Ég vil þá gjarnan spyrja hv. þingmann hvort — hann miðar við það sem hann veit um frumvarpið, það hefur ekki verið neitt leyndarmál, þetta hefur verið meira og minna inni á netinu — hann telji ekki að Samfylkingin muni styðja málið.