varamenn taka þingsæti.
Borist hafa bréf frá 10. þm. Reykv. n., Andrési Inga Jónssyni, og Nichole Leigh Mosty, 10. þm. Reykv. s., um að þau geti ekki sinnt þingmennsku á næstunni. Í dag taka því sæti á Alþingi 4. varamaður á lista Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs í kjördæminu, Þorsteinn V. Einarsson, og 1. varamaður á lista Bjartrar framtíðar í kjördæminu, Eva Einarsdóttir.
Kjörbréf þeirra hafa þegar verið rannsökuð og samþykkt en þau hafa ekki áður tekið sæti á Alþingi og ber því að undirrita drengskaparheit að stjórnarskránni.
[Þorsteinn V. Einarsson, 10. þm. Reykv. n., og Eva Einarsdóttir, 10. þm. Reykv. s., undirrituðu drengskaparheit að stjórnarskránni.]