149. löggjafarþing — 79. fundur, 18. mars 2019.
Frestun á skriflegum svörum.
Borist hefur bréf frá heilbrigðisráðherra og samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurn á þskj. 955, um ófrjósemisaðgerðir og þungunarrof, frá Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur, og fyrirspurn á þskj. 950, um stjórnsýslu og skráningu landeigna, frá Líneik Önnu Sævarsdóttur.