137. löggjafarþing — 8. fundur, 28. maí 2009.
aðildarumsókn að Evrópusambandinu.
38. mál
Hv. þm. Pétur H. Blöndal spyr hver sé ábyrgð okkar sem erum á móti Evrópusambandsaðild varðandi það ferli allt. Við getum auðvitað ekki tekið ábyrgð á öðrum en okkur sjálfum í þessu máli hér á þingi. Málið er komið til afgreiðslu þingsins. Ég hef gert grein fyrir afstöðu minni og gerði það við þessa ríkisstjórnarmyndun. Ég segi bara fyrir mig: Ég stend við sannfæringu mína og mun ekki hvika í því máli.