Bráðabirgðaútgáfa.
153. löggjafarþing — 85. fundur,  22. mars 2023.

heimsókn forseta þjóðþings Ungverjalands.

[15:00]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Ég vil vekja athygli hv. alþingismanna á því að forseti þjóðþings Ungverjalands, hr. László Kövér, er staddur á þingpöllum ásamt sendinefnd. Forseti ungverska þingsins er hér í heimsókn í Alþingishúsinu í tengslum við opinbera heimsókn til Íslands, í boði forseta Alþingis.

Ég vil fyrir hönd Alþingis bjóða forseta þjóðþings Ungverjalands og sendinefnd hans velkomin í Alþingishúsið og vænti þess að heimsókn þeirra til Íslands verði til þess að styrkja tengslin milli landa okkar.

Alþingi vottar forseta þjóðþings Ungverjalands og ungversku þjóðinni vináttu og virðingu. Ég bið hv. alþingismenn að taka undir orð mín með því að rísa úr sætum.

[Þingmenn risu úr sætum.]