Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 86. fundur,  23. mars 2023.

hungursneyðin í Úkraínu.

581. mál
[11:20]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Ég er virkilega hrærð yfir samstöðu okkar alþingismanna í þessu máli. Taflan er alveg sérstaklega falleg á að líta í dag og ég er virkilega stolt af okkur alþingismönnum hvernig við höfum svarað ákalli Úkraínumanna, verið samstiga með að setja þetta mál í forgang og senda með því skýr skilaboð, skilaboð um hörmulega atburði í mannkynssögunni og að við höfnum tilraunum þjóða sem reyna endurskrifa og endurskilgreina söguna. Með því reynum við að vekja athygli á þessum atburðum og koma í veg fyrir að þeir endurtaki sig. Ég segi því skýrt: Já.