133. löggjafarþing — 87. fundur, 13. mars 2007.
trjáræktarsetur sjávarbyggða.
51. mál
Herra forseti. Þetta er mjög áhugavert mál sem hefur örugglega verið grandskoðað af hv. þingmanni, formanni landbúnaðarnefndar. Þess vegna langar mig að spyrja hv. þingmann hvað hún áætli að kostnaðurinn sé við þessa nýju stofnun sem verið er að leggja til að verði sett á fót í Vestmannaeyjum.