149. löggjafarþing — 87. fundur,  1. apr. 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 258/2018 um breytingu á XVIII. viðauka við EES-samninginn.

584. mál
[16:32]
Horfa

Frsm. utanrmn. (Rósa Björk Brynjólfsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti um tillögu til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 258/2018 um breytingu á XVIII. viðauka við EES-samninginn, sem fjallar um öryggi og hollustuhætti á vinnustöðum, vinnurétt og jafnrétti kynjanna.

Með þessari þingsályktunartillögu er verið að leita heimildar Alþingis til að staðfesta ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingu á viðauka um öryggi og hollustuhætti á vinnustöðum, vinnurétt og jafnrétti kynjanna og fella inn í samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins frá 6. október 2015, um breytingu á tilskipunum Evrópuþingsins og ráðsins og tilskipunum ráðsins um farmenn.

Þar sem ekki var lagastoð fyrir hendi til innleiðingar á umræddri tilskipun var ákvörðun nr. 258/2018 tekin af sameiginlegu EES-nefndinni með stjórnskipulegum fyrirvara af Íslands hálfu. Í þessari tillögu er gerð nánari grein fyrir því hvað felst í slíkum fyrirvara, samanber 103. gr. EES-samningsins. Jafnframt er gert grein fyrir efni gerðarinnar sem um ræðir. Hún felur ekki í sér breytingar á þeim meginreglum sem í EES-samningnum felast.

Með tilskipuninni er kveðið á um breytingar á fimm tilskipunum ESB á sviði vinnuréttar. Með breytingunum voru felldar úr gildi tilteknar undanþágur sem voru í umræddum fimm tilskipunum sem áttu við um farmenn. Markmiðið með þeim breytingum var að tryggja farmönnum sömu réttindi og aðrir launþegar njóta og að þeir gætu nýtt sér að fullu rétt sinn til sanngjarnra og réttlátra vinnuskilyrða, sem og rétt til upplýsingamiðlunar og samráðs.

Innleiðing tilskipunarinnar hér á landi kallar á breytingar á lögum um evrópskt samstarfsráð í fyrirtækjum, lögum nr. 151/2006, um upplýsingar og samráð í fyrirtækjum, sem lög nr. 63/2000 kveða á, um hópuppsagnir, og breytingar á lögum nr. 72/2002, um réttarstöðu starfsmanna við aðilaskipti að fyrirtækjum. Félags- og barnamálaráðherra hefur á yfirstandandi löggjafarþingi lagt fram lagafrumvarp til innleiðingar á tilskipuninni.

Ég held að ég láti þetta nægja í bili um þingsályktunartillögu um staðfestingu á breytingu á viðauka um öryggi og hollustuhætti á vinnustöðum, vinnurétt og jafnrétti kynjanna við EES-samninginn.