143. löggjafarþing — 90. fundur, 2. apr. 2014.
vísun skýrslna Ríkisendurskoðunar til nefndar.
Með bréfum, dagsettum 31. mars, hefur forseti óskað eftir því, samanber ákvæði 8. töluliðar 1. mgr. 13. gr. þingskapa, við stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd að hún fjalli um skýrslu Ríkisendurskoðunar um útvistun opinberra verkefna til Bændasamtaka Íslands og skýrslu Ríkisendurskoðunar um Þjóðleikhúsið.