150. löggjafarþing — 94. fundur,  28. apr. 2020.

aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.

665. mál
[18:18]
Horfa

félags- og barnamálaráðherra (Ásmundur Einar Daðason) (F):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum í tengslum við vinnutíma starfsmanna sem veita notendastýrða persónulega aðstoð. Í almennu tali hafa þessi lög stundum verið nefnd vinnuverndarlögin og mun ég nýta mér það til einföldunar í máli mínu hér. Meðan á samstarfsverkefni ríkis, sveitarfélaga og heildarsamtaka fatlaðs fólks um notendastýrða persónulega aðstoð stóð á sínum tíma var jafnframt í gildi ákvæði til bráðabirgða í vinnuverndarlögum. Var þar kveðið á um að með samkomulagi samtaka aðila vinnumarkaðarins væri heimilt að víkja frá ákvæðum laga um hvíldartíma og næturvinnutíma þeirra starfsmanna sem veittu einstaklingum þjónustu á grundvelli verkefnisins.

Við gildistöku laganna um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir árið 2018 var gildistími bráðabirgðaákvæðis í vinnuverndarlögum lengdur til 31. desember 2019. Var það gert þar sem ákvæðið þótti nauðsynlegt þannig að unnt væri að semja um frávik frá vinnutímareglum sem lögin um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir kveða á um vegna vinnu þeirra starfsmanna sem veita notendastýrða persónulega aðstoð.

Virðulegur forseti. Mikilvægt er að fatlað fólk geti fengið notendastýrða persónulega aðstoð í samræmi við lög sem sett hafa verið um slíka þjónustu. Á sama tíma er mikilvægt að fram fari mat á vinnuaðstæðum þeirra starfsmanna sem starfa við að veita slíka þjónustu en aukinn réttur eins má ekki rýra rétt annars.

Í ljósi þess hefur verið skipuð nefnd sem hefur þegar hafið störf og er henni ætlað að koma með tillögur að breytingum á lögum eða reglugerðum eftir því sem við á að því er varðar réttindi og starfsumhverfi þeirra starfsmanna sem hér um ræðir. Nefndin vinnur að könnun meðal umræddra starfsmanna og gert er ráð fyrir að niðurstöður þeirrar vinnu liggi fyrir í vor eða sumar.

Ég geri ráð fyrir því að nefndin muni síðan í kjölfarið koma fram með tillögur um hvernig þessum málum verði best háttað til framtíðar litið þar sem gætt verði bæði sjónarmiða þeirra sem nýta sér notendastýrða persónulega aðstoð sem og sjónarmiða þeirra sem veita þjónustuna. Frumvarpið er því lagt fram til að tryggja að heimilt sé að haga vinnutíma starfsmanna sem veita notendastýrða persónulega aðstoð með þeim hætti sem lög um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir gera ráð fyrir án þess að frávik frá vinnuverndarlögum verði meiri en þörf krefur hvað varðar vinnutíma þeirra starfsmanna sem veita þjónustuna.

Í frumvarpinu er því gert ráð fyrir að gildistími umrædds ákvæðis til bráðabirgða í vinnuverndarlögum verði lengdur frá og með 1. janúar 2020 til næstu áramóta. Þannig er tryggt að heimilt sé að semja um rýmri vinnutíma en gert er ráð fyrir í vinnuverndarlögunum vegna þeirra starfsmanna sem veita NPA-aðstoð þangað til búið verður að ganga frá þessum málum í löggjöfinni til framtíðar. Í því sambandi geri ég ráð fyrir að geta næsta haust lagt fram frumvarp á Alþingi þar sem lagðar verða til breytingar á löggjöfinni til frambúðar verði það niðurstaða nefndarinnar að gera þurfi slíkar lagabreytingar.

Í ljósi framangreinds legg ég mikla áherslu á að frumvarpið verði samþykkt til hagsbóta fyrir umrædda starfsmenn og þá einstaklinga sem nýta sér þjónustu þeirra þangað til búið verður að ákveða á Alþingi hvernig þessum málum verður best háttað til framtíðar.

Að lokinni þessari umræðu legg ég til að málinu verði vísað til hv. velferðarnefndar.