Alþingiskosningar 1942 – fyrri kosningar ársins
Vorið 1941 samþykkti Alþingi vegna síðari heimsstyrjaldarinnar að fresta þingkosningum sem áttu að fara fram það ár. Ári síðar, vorið 1942, hafði náðst samstaða meiri hluta þingsins um að gera breytingar á kjördæmaskipan. Þing var því rofið 23. maí 1942 og fóru kosningar fram 5. júlí.
Sex stjórnmálasamtök lögðu fram framboðslista við kosningarnar: Alþýðuflokkur, Framsóknarflokkur, Frjálslyndir vinstri menn, Sjálfstæðisflokkur, Sósíalistaflokkur og Þjóðveldismenn. Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur buðu fram í öllum kjördæmum, Sósíalistaflokkurinn í öllum nema þremur, Alþýðuflokkurinn í öllum nema tveimur en Þjóðveldismenn og Frjálslyndir vinstri menn buðu aðeins fram í Reykjavíkurkjördæmi.
Um kosningarnar | ||
Kjördagur | 5. júlí 1942 | |
Mannfjöldi | 122.385 | |
Kjósendur á kjörskrá | 73.440 | |
Hlutfall kosningarbærra af heildarmannfjölda | 59,7% | |
Greidd atkvæði | 58.940 | |
Kosningaþátttaka | 80,3% | |
Hlutfall kjósenda af heildarmannfjölda | 48,1% | |
Kosningaþátttaka karla | 86,3% | |
Kosningaþátttaka kvenna | 74,6% | |
Kjördæmakjörnir þingmenn | 38 | |
Jöfnunarþingmenn | 11 | |
Heildarfjöldi þingmanna | 49 | |
Kosningaúrslit | ||
Gild atkvæði | 58.131 | |
Sjálfstæðisflokkur | 39,5% | 17 þingmenn |
Framsóknarflokkur | 27,6% | 20 þingmenn |
Sósíalistaflokkur | 16,2% | 6 þingmenn |
Alþýðuflokkur | 15,4% | 6 þingmenn |
Þjóðveldismenn | 1,1% | |
Frjálslyndir vinstri menn | 0,2% | |
Jöfnunarþingmenn | ||
Sjálfstæðisflokkur | 6 | |
Sósíalistaflokkur | 4 | |
Alþýðuflokkur | 1 |
Kjördæmi og þingmenn 5. júlí 1942 | |
Einmenningskjördæmi | |
Borgarfjarðarsýsla | 1 |
Mýrasýsla | 1 |
Snæfellsnessýsla | 1 |
Dalasýsla | 1 |
Barðastrandarsýsla | 1 |
Vestur-Ísafjarðarsýsla | 1 |
Ísafjarðarkaupstaður | 1 |
Norður-Ísafjarðarsýsla | 1 |
Strandasýsla | 1 |
Vestur-Húnavatnssýsla | 1 |
Austur-Húnavatnssýsla | 1 |
Akureyrarkaupstaður | 1 |
Suður-Þingeyjarsýsla | 1 |
Norður-Þingeyjarsýsla | 1 |
Seyðisfjarðarkaupstaður | 1 |
Austur-Skaftafellssýsla | 1 |
Vestur-Skaftafellssýsla | 1 |
Vestmannaeyjakaupstaður | 1 |
Hafnarfjarðarkaupstaður | 1 |
Gullbringu- og Kjósarsýsla | 1 |
Tvímenningskjördæmi | |
Skagafjarðarsýsla | 2 |
Eyjafjarðarsýsla og Siglufjarðarkaupstaður | 2 |
Norður-Múlasýsla | 2 |
Suður-Múlasýsla og Neskaupstaður | 2 |
Rangárvallasýsla | 2 |
Árnessýsla | 2 |
Kjördæmi með hlutfallskosningu | |
Reykjavík | 6 |