19. fundur
allsherjar- og menntamálanefndar á 146. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 9. mars 2017
kl. 08:30
Mættir:
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir (ÁslS) formaður, kl. 08:30Nichole Leigh Mosty (NicM) 1. varaformaður, kl. 08:30
Andrés Ingi Jónsson (AIJ), kl. 08:39
Andri Þór Sturluson (ASt), kl. 08:30
Eygló Harðardóttir (EyH), kl. 08:30
Pawel Bartoszek (PawB), kl. 08:30
Valgerður Gunnarsdóttir (ValG), kl. 08:30
Vilhjálmur Árnason boðaði forföll. Gunnar Hrafn Jónsson var fjarverandi.
Nefndarritari: Kristel Finnbogad. Flygenring
Bókað:
1) Fundargerð Kl. 08:35
Fundargerð 18. fundar var samþykkt.
2) Kynning á meðferð EES-mála Kl. 08:38
Á fund nefndarinnar komu Steinlaug Högnadóttir frá utanríkisráðuneyti og Gunnþóra Elín Erlingsdóttir frá nefndasviði skrifstofu Alþingis og kynntu þinglega meðferð EES-mála og svöruðu spurningum nefndarmanna.
3) 65. mál - minning tveggja alda afmælis Jóns Árnasonar Kl. 09:10
Tillaga um að Valgerður Gunnarsdóttir verði framsögumaður málsins í stað Einars Brynjólfssonar var samþykkt.
4) Starfið framundan Kl. 09:12
Formaður gerði grein fyrir drögum að dagskrá nefndadaga og nefndin ræddi starfið framundan.
5) 119. mál - orlof húsmæðra Kl. 09:20
Tillaga um að senda málið til umsagnar var samþykkt.
Tillaga um að Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir formaður nefndarinnar yrði framsögumaður málsins var samþykkt.
6) Önnur mál Kl. 09:28
Fleira var ekki gert.
Fundi slitið kl. 09:28