18. fundur
allsherjar- og menntamálanefndar á 148. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 1. mars 2018
kl. 09:00
Mættir:
Páll Magnússon (PállM) formaður, kl. 09:00Guðmundur Andri Thorsson (GuðmT) 1. varaformaður, kl. 09:00
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ) 2. varaformaður, kl. 09:00
Andrés Ingi Jónsson (AIJ), kl. 09:00
Anna Kolbrún Árnadóttir (AKÁ), kl. 09:00
Birgir Ármannsson (BÁ), kl. 09:00
Guðmundur Ingi Kristinsson (GIK), kl. 09:00
Jón Þór Ólafsson (JÞÓ) fyrir Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur (ÞSÆ), kl. 09:00
Jón Steindór Valdimarsson (JSV), kl. 09:00
Willum Þór Þórsson (WÞÞ), kl. 09:00
Jón Þór Ólafsson vék af fundi kl. 09:20-09:54.
Nefndarritari: Elisabeth Patriarca Kruger
Bókað:
1) Fundargerð Kl. 09:00
Fundargerð 17. fundar var samþykkt.
2) Reglugerð (ESB) 2017/1128 um frjálsa för fyrir þjónustu efnisveitna og myndmiðlaþjónustu á innri markaðinum Kl. 09:01
Á fund nefndarinnar komu Jón Vilberg Guðjónsson frá mennta- og menningarmálaráðuneyti og Álfrún Perla Baldursdóttir, Finnur Þór Birgisson og Pétur Gunnarsson frá utanríkisráðuneyti. Gestir kynntu málið og þær breytingar sem reglugerðin mun hafa í för með sér og svöruðu spurningum nefndarinnar.
Á fund nefndarinnar komu Jón Vilberg Guðjónsson frá mennta- og menningarmálaráðuneyti og Álfrún Perla Baldursdóttir, Finnur Þór Birgisson og Pétur Gunnarsson frá utanríkisráðuneyti. Gestir kynntu málið og þær breytingar sem tilskipunin mun hafa í för með sér og svöruðu spurningum nefndarinnar.
4) 213. mál - almenn hegningarlög Kl. 09:44
Tillaga um að senda málið til umsagnar var samþykkt.
Tillaga um að Steinunn Þóra Árnadóttir verði framsögumaður málsins var samþykkt.
5) 219. mál - gerð áætlunar um stafræna endurgerð íslensks prentmáls Kl. 09:47
Tillaga um að senda málið til umsagnar var samþykkt.
Tillaga um að Andrés Ingi Jónsson verði framsögumaður málsins var samþykkt.
6) Önnur mál Kl. 09:50
Nefndin ræddi störf nefndarinnar.
Guðmundur Andri Thorsson lagði fram tillögu að nefndin óski eftir að dómsmálaráðuneytið taki saman upplýsingar um útlendinga er varðar fylgdarlaus ungmenni, aldursgreiningar og vistun í fangelsum. Það var samþykkt.
Fleira var ekki gert.
Fundi slitið kl. 09:55