17. fundur
atvinnuveganefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 12. nóvember 2019
kl. 08:45
Mættir:
Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM) formaður, kl. 08:45Albertína Friðbjörg Elíasdóttir (AFE) 1. varaformaður, kl. 08:45
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK) 2. varaformaður, kl. 08:45
Ásmundur Friðriksson (ÁsF), kl. 08:45
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF), kl. 08:52
Ólafur Ísleifsson (ÓÍ), kl. 08:50
Rósa Björk Brynjólfsdóttir (RBB), kl. 09:00
Sigurður Páll Jónsson (SPJ), kl. 08:45
Jón Þór Ólafsson var fjarverandi.
Nefndarritari: Birgitta Kristjánsdóttir
Bókað:
1) Fundargerð Kl. 08:45
Frestað.
Á fund nefndarinnar kom ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir. Hún kynnti nýsköpunarstefnu atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins og svaraði spurningum nefndarmanna.
Nefndin ræddi málið.
4) Úttekt á strandveiðum Kl. 09:40
Nefndin ræddi málið.
5) 251. mál - lax- og silungsveiði Kl. 09:50
Á fund nefndarinnar mættu Gísli Ásgeirsson frá Veiðifélaginu Streng, Víðir Smári Petersen, Guðni Guðbergsson og Sigurður Már Einarsson frá Hafrannsóknastofnun rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatna og Guðni Magnús Eiríksson frá Fiskistofu. Gestirnir kynntu mál sitt og svöruðu spurningum nefndarmanna.
6) Önnur mál Kl. 11:18
Nefndin ræddi starfið framundan.
Fleira var ekki gert.
Fundi slitið kl. 11:20