21. fundur
fjárlaganefndar á 145. löggjafarþingi
haldinn í færeyska herberginu, miðvikudaginn 11. nóvember 2015 kl. 20:00


Mættir:

Vigdís Hauksdóttir (VigH) formaður, kl. 18:46
Guðlaugur Þór Þórðarson (GÞÞ) 1. varaformaður, kl. 18:46
Oddný G. Harðardóttir (OH) 2. varaformaður, kl. 18:46
Ásmundur Einar Daðason (ÁsmD), kl. 19:19
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG), kl. 18:46
Brynhildur Pétursdóttir (BP), kl. 18:46
Fjóla Hrund Björnsdóttir (FHB) fyrir Pál Jóhann Pálsson (PJP), kl. 18:46
Helgi Hrafn Gunnarsson (HHG) fyrir Ástu Guðrúnu Helgadóttur (ÁstaH), kl. 18:46
Valgerður Gunnarsdóttir (ValG), kl. 18:46

Haraldur Benediktsson var fjarverandi en tók þátt í afgreiðslu málsins í gegnum síma. Helgi Hrafn Gunnarsson vék af fundi kl. 19:45.

Nefndarritarar:
Jón Magnússon
Ólafur Elfar Sigurðsson

Bókað:

1) 148. mál - opinber fjármál Kl. 18:46
Fjárlaganefnd afgreiddi frumvarp til laga um opinber fjármál til 2. umræðu með nefndaráliti og breytingartillögum. Þeir sem samþykktu afgreiðsluna voru Vigdís Hauksdóttir, Guðlaugur Þór Þórðarson, Valgerður Gunnarsdóttir, Ásmundur Einar Daðason, Fjóla Hrund Björnsdóttir, Brynhildur Pétursdóttir og Oddný G. Harðardóttir með fyrirvara um 7. gr. Haraldur Benediktsson var samþykkur afgreiðslu málsins og var sú afgreiðsla í samræmi við 4. mgr. 18. gr. starfsreglna fyrir fastanefndir Alþingis. Afstaða hans var staðfest með símtali á fundinum. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir sat hjá við afgreiðslu málsins og mun skila inn minnihlutaáliti.

2) Önnur mál Kl. 20:10
Fleira var ekki gert.

3) Fundargerð Kl. 20:15
Afgreiðslu fundargerðar var frestað.

Fundi slitið kl. 20:15