2. fundur
umhverfis- og samgöngunefndar á 148. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 25. janúar 2018
kl. 09:00
Mættir:
Bergþór Ólason (BergÓ) formaður, kl. 09:10Jón Gunnarsson (JónG) 1. varaformaður, kl. 09:00
Ari Trausti Guðmundsson (ATG) 2. varaformaður, kl. 09:00
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 09:00
Helga Vala Helgadóttir (HVH), kl. 09:00
Karl Gauti Hjaltason (KGH), kl. 09:00
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS), kl. 09:00
Una Hildardóttir (UnaH), kl. 09:00
Vilhjálmur Árnason var fjarverandi vegna þingstarfa erlendis.
Hanna Katrín Friðriksson boðaði forföll.
Nefndarritari: Steindór Dan Jensen
Bókað:
1) Fundargerð Kl. 09:00
Fundargerð 1. fundar var samþykkt.
2) Þingmálaskrá 148. löggjafarþings 2017-2018 Kl. 09:00
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, og Sigríður Auður Arnardóttir, Steinunn Fjóla Sigurðardóttir og Helga Jónsdóttir frá umhverfis- og auðlindaráðuneyti komu á fund nefndarinnar og kynntu þau þingmál sem ráðherra hyggst leggja fram á löggjafarþinginu.
3) Önnur mál Kl. 10:00
Fleira var ekki gert.
4) Beiðni um áheyrnaraðild Kl. 09:00
Áheyrnaraðild Björns Leví Gunnarssonar var samþykkt.
Fundi slitið kl. 10:00