4. fundur
umhverfis- og samgöngunefndar á 148. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 1. febrúar 2018
kl. 09:30
Mættir:
Jón Gunnarsson (JónG) 1. varaformaður, kl. 09:30Ari Trausti Guðmundsson (ATG) 2. varaformaður, kl. 09:30
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 09:30
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 09:30
Helga Vala Helgadóttir (HVH), kl. 09:30
Karl Gauti Hjaltason (KGH), kl. 09:30
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS), kl. 09:30
Maríanna Eva Ragnarsdóttir (MER), kl. 09:30
Rósa Björk Brynjólfsdóttir (RBB), kl. 09:30
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 09:30
Nefndarritari: Steindór Dan Jensen
Bókað:
1) Fundargerð Kl. 09:30
Fundargerð 3. fundar var samþykkt.
2) 11. mál - tekjustofnar sveitarfélaga Kl. 09:30
Nefndin samþykkti að afgreiða málið til annarrar umræðu. Allir viðstaddir nefndarmenn stóðu saman að nefndaráliti.
3) 109. mál - Samgöngustofa, stjórnsýslustofnun samgöngumála Kl. 09:35
Nefndin ákvað að senda málið til umsagnar með tveggja vikna umsagnarfresti.
4) 110. mál - eftirlit með skipum Kl. 09:35
Nefndin ákvað að senda málið til umsagnar með tveggja vikna umsagnarfresti.
5) 111. mál - farþegaflutningar og farmflutningar á landi Kl. 09:35
Nefndin ákvað að senda málið til umsagnar með tveggja vikna umsagnarfresti.
6) Önnur mál Kl. 09:37
Fleira var ekki gert.
Fundi slitið kl. 09:37