41. fundur
umhverfis- og samgöngunefndar á 154. löggjafarþingi
haldinn í Smiðju, þriðjudaginn 13. febrúar 2024 kl. 09:10


Mætt:

Bjarni Jónsson (BjarnJ) formaður, kl. 09:10
Vilhjálmur Árnason (VilÁ) 2. varaformaður, kl. 09:10
Andrés Ingi Jónsson (AIJ), kl. 09:10
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK), kl. 09:10
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF), kl. 09:10
Orri Páll Jóhannsson (OPJ), kl. 09:10
Þórunn Sveinbjarnardóttir (ÞSv), kl. 09:10

Ingibjörg Isaksen og Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir boðuðu forföll.
Þórunn Sveinbjarnardóttir vék af fundi kl. 10:24.

Nefndarritari: Brynjar Páll Jóhannesson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:10
Dagskrárlið frestað.

2) Banaslys á þjóðvegum Kl. 09:11
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Bergþóru Þorkelsdóttur, Bergþóru Kristinsdóttur og Guðmund Val Guðmundsson frá Vegagerðinni.

3) Framkvæmd snjómoksturs Kl. 09:50
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Bergþóru Þorkelsdóttur, Bergþóru Kristinsdóttur og Guðmund Val Guðmundsson frá Vegagerðinni.

4) 535. mál - landsskipulagsstefna fyrir árin 2024–2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2024–2028 Kl. 10:30
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Rut Kristinsdóttur og Einar S. Einarsson frá Landsneti og Þórólf Nielsen og Jónu Bjarnadóttur frá Landsvirkjun.

5) 88. mál - Sundabraut Kl. 11:05
Samþykkt var að senda málið til umsagnar með tveggja vikna fresti. Tillaga um að Njáll Trausti Friðbertsson verði framsögumaður málsins var samþykkt.

6) Önnur mál Kl. 11:13
Nefndin ræddi starfið fram undan.
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:13