Samantekt um þingmál
189. mál á 143. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.
Markmið
Að bregðast við athugasemdum Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) vegna innleiðingar á MiFID-tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins.
Helstu breytingar og nýjungar
Minni háttar breytingar á gildandi lögum sem varða afmarkaða þætti í starfsemi fjármálafyrirtækja og eftirlitsstarfsemi með þeim.
Breytingar á lögum og tengd mál
Breyta á lögum nr.
108/2007 um verðbréfaviðskipti og lögum nr.
110/2007 um kauphallir.
Kostnaður og tekjur
Hefur ekki áhrif á ríkissjóð.
Umsagnir (helstu atriði)
Tvær
umsagnir bárust án athugasemda.
Afgreiðsla
Samþykkt óbreytt.
Aðrar upplýsingar
MiFID-tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2004/39/EB frá 21. apríl 2004 um markaði fyrir fjármálagerninga.
Fjármálaeftirlitið.
Upplýsingarit um MiFID fyrir neytendur (2008). Fjármálaeftirlitið.
Investment Services Directive - Markets in Financial Instruments Directive (MiFID). Evrópusambandið.
Síðast breytt 01.04.2014. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.
Um samantektir
Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.
Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.
Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.