Samantekt um þingmál
671. mál á 145. löggjafarþingi.
Umhverfis- og auðlindaráðherra.
Markmið
Að undirbúa innleiðingu á tilskipunum ESB um samræmingu laga um markaðssetningu raffanga og um rafsegulsamhæfi.
Helstu breytingar og nýjungar
Núgildandi lög eru styrkt auk minni háttar breytinga sem lúta að skyldum rafverktaka til yfirferðar eigin verka og skilgreiningum á helgunarsvæðum raflína. Lagt er til að Mannvirkjastofnun fái heimildir til beitingar stjórnvaldssekta.
Breytingar á lögum og tengd mál
Breyta á lögum um öryggi raforkuvirkja, neysluveitna
og raffanga nr.
146/1996.
Kostnaður og tekjur
Hefur ekki áhrif á ríkissjóð.
Afgreiðsla
Samþykkt óbreytt.
Aðrar upplýsingar
Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins
2014/30/ESB um samræmingu laga aðildarríkjanna um rafsegulsamhæfi.
Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins
2014/35/ESB um samræmingu laga aðildarríkjanna um markaðssetningu raffanga sem notuð eru innan ákveðinna spennumarka.
Síðast breytt 03.06.2016. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.
Um samantektir
Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.
Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.
Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.