Samantekt um þingmál

Leiga skráningarskyldra ökutækja

751. mál á 153. löggjafarþingi.
Menningar- og viðskiptaráðherra.

Markmið

Að bæta skilyrði fyrir virka samkeppni og efla viðspyrnu hagkerfisins.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að ökutækjaleigur þurfi ekki lengur að hafa fasta starfsstöð heldur einungis geymslustað fyrir skráningarskyld ökutæki. Þá er lagt til að skerpt verði á orðalagi um skilyrði fyrir útgáfu og niðurfellingu starfsleyfis til að koma í veg fyrir mistúlkun.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um leigu skráningarskyldra ökutækja, nr. 65/2015.

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.

Afgreiðsla

Samþykkt með fáeinum breytingum sem eru lagatæknilegs eðlis.

Aðrar upplýsingar

Skýrsla Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) um samkeppnismat íslenskrar ferðaþjónustu og byggingariðnaðar, 10. nóvember 2020.


Síðast breytt 24.06.2024. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.