Samantekt um þingmál

Breyting á ýmsum lögum um framhald á stuðningsaðgerðum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ

1130. mál á 154. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.

Markmið

Að framlengja stuðningsaðgerðir fyrir heimili og fyrirtæki í Grindavíkurbæ vegna náttúruhamfara sem hafa haft veruleg áhrif á atvinnulíf og húsnæði á svæðinu.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að framlengja gildistíma rekstrarstuðnings til ársloka 2024. Jafnframt er gert ráð fyrir að styrkfjárhæðir geti orðið umtalsvert hærri fyrir tímabilið frá júlí 2024 til og með desember 2024. Þá er lagt til að framlengja gildistíma sértæks húsnæðisstuðnings út árið 2024. Loks er lagt til að framlengja tímabundinn stuðning til greiðslu launa vegna náttúruhamfara til 31. ágúst 2024.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um tímabundinn rekstrarstuðning vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ, nr. 15/2024.
Lög um sértækan húsnæðisstuðning vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ, nr. 94/2023.
Lög um tímabundinn stuðning til greiðslu launa vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ, nr. 87/2023.

Kostnaður og tekjur

Kostnaður ríkissjóðs vegna framlengingar á rekstrarstuðningi er áætlaður um 160 milljónir kr. á mánuði, eða allt að 960 milljónir króna fyrir síðari helming ársins 2024. Gert er ráð fyrir að viðbótarframlag vegna sértæks húsnæðisstuðnings nemi um 250 milljónum kr. Þá er gert ráð fyrir að framlenging tímabundins stuðnings til greiðslu launa gæti kostað ríkissjóð 1-2 milljarða kr. Alls er því gert ráð fyrir að útgjöld ríkissjóðs muni aukast um 2,21-3,21 milljarða kr.

Afgreiðsla

Samþykkt með minni háttar breytingum.


Síðast breytt 26.08.2024. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.