Hátíðarfundur Alþingis 19. júní í tilefni af 100 ára afmæli kosningarréttar kvenna
Hátíðarfundur var haldinn á Alþingi föstudaginn 19. júní á 100 ára afmæli kosningarréttar kvenna. Á fundinum var samþykkt tillaga til þingsályktunar um Jafnréttissjóð Íslands.
Forseti Alþingis, Einar K. Guðfinnsson, flutti ávarp. Að loknu ávarpi þingforseta hófst síðari umræða um dagskrármálið, Jafnréttissjóð Íslands og talaði einn frá hverjum flokki í þeirri umræðu, Þórunn Egilsdóttir, Katrín Júlíusdóttir, Katrín Jakobsdóttir, Hanna Birna Kristjánsdóttir, Björt Ólafsdóttir og Birgitta Jónsdóttir. Að lokinni atkvæðagreiðslu um málið flutti forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, ávarp. Kvennakórinn Vox feminae, undir stjórn Margrétar Jóhönnu Pálmadóttur, söng á hátíðarfundinum.
Samkvæmt þingsályktunartillögunni mun Jafnréttissjóður Íslands hafa að markmiði að fjármagna eða styrkja verkefni sem ætlað er að stuðla að frekari framþróun á sviði jafnréttismála hérlendis og erlendis. Til þessara verkefna er ætlunin að veita sjóðnum 100 milljónir króna árlega næstu fimm ár, 2016–2020. Samkvæmt tillögunni kýs Alþingi þriggja manna stjórn sjóðsins og jafnmarga til vara. Stjórn sjóðsins er ætlað að eiga samvinnu við samtök kvenna, aðila á vinnumarkaði, ráðuneyti, skóla, sjóði og stofnanir um viðfangsefni sjóðsins og tilkynna um úthlutanir úr honum 19. júní ár hvert.
Til fundarins var meðal annars boðið öllum núlifandi konum sem setið hafa sem aðalmenn á Alþingi.
Ljósmyndir © Bragi Þór Jósefsson.