Tilkynningar
Opinn fundur um störf peningastefnunefndar 18. nóvember - bein útsending
Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis heldur opinn fund mánudaginn 18. nóvember kl. 9:30. Rætt verður um störf peningastefnunefndar.
Gestir frá Seðlabanka Íslands verða Már Guðmundsson, Gylfi Zoega og Þórarinn G. Pétursson.
Fundurinn verður haldinn í húsnæði nefndasviðs Alþingis í Austurstræti 8-10 og verður opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi meðan húsrúm leyfir.
Bein útsending verður frá fundinum í ríkissjónvarpinu og á vef Alþingis og sjónvarpsrás Alþingis á dreifikerfum Símans og Vodafone.
Fundurinn verður haldinn samkvæmt reglum um opna fundi fastanefnda Alþingis, sjá reglur.