Fjármála- og rekstrarsvið
Fjármála- og rekstrarsvið sinnir öllum almennum rekstri skrifstofu þingsins í fimm deildum. Þær eru fjármáladeild, upplýsingatæknideild, veitingadeild, fasteignaumsjón og öryggis- og þjónustudeild auk þess sem öryggisstjóri starfar á sviðinu.
Fjármáladeild hefur umsjón með bókhaldi Alþingis, launavinnslu þingmanna, ferðabókunum og uppgjöri á ferðakostnaði innan lands og utan. Þá annast deildin greiðslu annars kostnaðar í tengslum við störf þingmanna og móttöku ásamt greiðslu reikninga og umsjón með eignaskrá. Deildin veitir þingmönnum upplýsingar um starfskjör og önnur réttindamál.
Starfsfólk fjármáladeildar hefur aðsetur á 2. hæð Smiðju, Tjarnargötu 9.
Upplýsingatæknideild annast þróun og öryggi tölvumála, rekstur staðarnets og alls tölvubúnaðar Alþingis. Deildin sér um alla almenna tölvu- og notendaþjónustu fyrir þingmenn og starfsfólk, svo sem tölvukennslu, tæknilega umsjón með vef Alþingis og umsjón með símakerfum.
Starfsfólk upplýsingatæknideildar hefur aðsetur í Blöndahlshúsi, Kirkjustræti 8b, og Skjaldbreið, Kirkjustræti 8a.
Veitingadeild annast alla veitingaþjónustu á starfssvæði þingsins, svo sem rekstur mötuneytis í Skála, kaffiveitingar á nefndafundum og veitingaþjónustu á fundum á vegum þingsins.
Fasteignaumsjón sér um rekstur og viðhald húsnæðis. Deildin hefur aðsetur í Skjaldbreið, Kirkjustræti 8a.
Öryggis- og þjónustudeild hefur á hendi öryggisgæslu og móttöku gesta í húsnæði Alþingis. Deildin annast jafnframt akstur og rekstur bifreiða Alþingis, sendiferðir á svæðinu, magnljósritun og ræstingu auk fleiri þjónustuverkefna.
Starfsfólk öryggis- og þjónustudeildar hefur aðsetur í Skála, Vonarstræti 8 og Austurstræti 8–10.
Öryggisstjóri sér um öryggiskerfi, gerð áhættumats og viðbragðsáætlana. Öryggisstjórinn hefur aðsetur í Blöndahlshúsi, Kirkjustræti 8b.