Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög í október 1996. Útgáfa 120b. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um starfskjör launafólks og skyldutryggingu lífeyrisréttinda
1980 nr. 55 9. júní
1. gr. [Laun og önnur starfskjör, sem aðildarsamtök vinnumarkaðarins semja um, skulu vera lágmarkskjör, óháð kyni, þjóðerni eða ráðningartíma fyrir alla launamenn í viðkomandi starfsgrein á svæði því er samningurinn tekur til. Samningar einstakra launamanna og atvinnurekenda um lakari kjör en hinir almennu kjarasamningar ákveða skulu ógildir.] 1)
1)L. 69/1993, 5. gr.
2. gr. Öllum launamönnum og þeim, sem stunda atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi, er rétt og skylt að eiga aðild að lífeyrissjóði viðkomandi starfsstéttar eða starfshóps, enda starfi lífeyrissjóðurinn samkvæmt sérstökum lögum eða reglugerð, sem staðfest hefur verið af fjármálaráðuneytinu. Atvinnurekendum er skylt að halda eftir af launum starfsfólks síns iðgjaldshluta þess og standa viðkomandi lífeyrissjóði skil á honum, ásamt mótframlagi sínu, samkvæmt þeim reglum, sem settar eru um iðgjaldagreiðslur í reglugerð viðkomandi sjóðs eða lögum. Verði ágreiningur um það, til hvaða lífeyrissjóðs iðgjöld skuli greidd, úrskurðar fjármálaráðuneytið hann, að fenginni umsögn Vinnuveitendasambands Íslands, Alþýðusambands Íslands og/eða þeirra aðila annarra, sem hlut eiga að máli.
3. gr. Tryggingaskylda skal innt af hendi með þátttöku í lífeyrissjóðum skv. 2. gr. eftir því sem kostur er og samkvæmt reglum einstakra sjóða um sjóðsaðild. Eigi maður ekki sjálfsagða aðild að sjóði skv. 2. gr. velur hann sér lífeyrissjóð eftir því sem reglur einstakra sjóða leyfa. Sé tryggingaskyldu ekki fullnægt með þessum hætti, skal henni fullnægt með iðgjaldagreiðslum til lífeyrissjóðs, er úrskurðaraðili skv. 2. gr. vísar til, og með samkomulagi við viðkomandi lífeyrissjóð.
4. gr. Sé ekki greitt iðgjald vegna einhvers starfandi manns í lífeyrissjóð, sem viðurkenndur er af fjármálaráðuneytinu, að minnsta kosti 10% af viðurkenndum stofni iðgjalda, hvort sem hann er dagvinnulaun, kaupviðmiðun eða heildarlaun, eftir því sem kveðið er á um í reglugerðum eða lögum, eða af reiknuðu endurgjaldi fyrir starf við eigin rekstur sjálfstæðra atvinnurekenda skv. 2. mgr. 1. tölul. A-liðar 7. gr. laga nr. 75/1981, sbr. 59. gr. sömu laga, skal greiða það sem á vantar til lífeyrissjóðs. Greiðslur skulu vera í samræmi við reglur viðkomandi sjóðs, annaðhvort eftir vali viðkomandi manns, sbr. ákvæði 2. og 3. gr. þessara laga, eða samkvæmt ábendingu úrskurðaraðila skv. 2. gr. Heimilt er að setja nánari ákvæði um framkvæmd þessarar greinar í reglugerð, m.a. um stofn iðgjalda og hámark fyrir greiðslu iðgjalda.
Greiðsla iðgjalda skal fara eftir reglugerðum viðkomandi lífeyrissjóðs. Sé iðgjald miðað við reiknað endurgjald fyrir störf við eigin rekstur skal stofn iðgjaldsins ákvarðaður sem reiknað endurgjald á næstliðnu ári, samkvæmt skattframtali eða ákvörðun skattstjóra, uppfært til þess tímabils sem greiðslan tekur til. Fjármálaráðuneytið ákveður og birtir uppfærslustuðul endurgjaldsins með hliðsjón af almennum launabreytingum.
5. gr. Eftir gildistöku laga þessara er lífeyrissjóðum einungis heimilt að endurgreiða sjóðsfélögum iðgjöld þeirra í því skyni að færa féð og þar með réttindi, sem þeim fylgja, milli lífeyrissjóða. [Þó má ákveða í reglugerð endurgreiðslur til erlendra ríkisborgara sem flytja úr landi, enda sé slíkt ekki óheimilt samkvæmt milliríkjasamningum sem Ísland er aðili að. Sé það gert skal tilgreint til hvaða ríkisborgara bann við endurgreiðslum tekur. Þá er heimilt að ákveða í reglugerð endurgreiðslur á þeim iðgjöldum sem menn greiða til lífeyrissjóða eftir að þeir hafa náð 75 ára aldri, svo og þeim hluta iðgjalda sem kann að fara fram úr því sem skylt er að greiða samkvæmt lögum eða kjarasamningum.] 1)
1)L. 69/1993, 6. gr.
[5. gr. a. Nú ákveður félagi í lífeyrissjóði, sem á rétt á töku fæðingarorlofs samkvæmt lögum nr. 97/1980, 1) að hverfa úr fyrra starfi að hluta eða öllu leyti og til heimilisstarfa vegna barnsburðar og er þá þeim lífeyrissjóði, sem viðkomandi er félagsmaður í, skylt að veita félagsmanninum heimild til áframhaldandi aðildar að sjóðnum á óbreyttum grundvelli í allt að 7 ár, enda taki félagsmaður þá að sér að greiða iðgjaldahlut atvinnurekanda ásamt sínum eigin. Slíkur félagsmaður nýtur allra sömu réttinda í lífeyrissjóðnum og aðrir félagsmenn, þ. á m. lánsréttinda.] 2)
1)Nú l. 57/1987. 2)L. 58/1985, 1. gr.
6. gr. Öllum atvinnurekendum er skylt að greiða í sjúkrasjóði og orlofssjóði viðkomandi stéttarfélaga iðgjöld þau, sem aðildarsamtök vinnumarkaðarins semja um hverju sinni, og samkvæmt þeim reglum, sem kjarasamningar greina.
Atvinnurekanda er skylt að halda eftir af launum starfsmanns iðgjaldi hans til viðkomandi stéttarfélags samkvæmt þeim reglum, sem kjarasamningar greina.
7. gr. [Verði dráttur á greiðslu iðgjalda samkvæmt lögum þessum skal skuldari greiða dráttarvexti af skuldinni frá gjalddaga samkvæmt lögum um vexti.] 1)
1)L. 33/1987, 6. gr.
8. gr. … 1)
1)L. 21/1991, 181. gr.
9. gr. Ráðherra setur nánari ákvæði um framkvæmd laga þessara með reglugerð. 1)
1)Rg. 194/1981.
10. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi. …