Árni Johnsen

Árni Johnsen

Þingseta

Alþingismaður Suðurlands 1983–1987, 1991–2001 og Suðurkjördæmis 2007–2013 (Sjálfstæðisflokkur).

Varaþingmaður Suðurlands febrúar–mars 1988, nóvember 1989, mars–apríl 1990, janúar–febrúar 1991 (Sjálfstæðisflokkur).

Minningarorð
Raddsýnishorn

Æviágrip

Fæddur í Vestmannaeyjum 1. mars 1944, dáinn 6. júní 2023. Foreldrar: Poul C. Kanélas, Detroit, Bandaríkjunum, og Ingibjörg Á. Johnsen (fædd 1. júlí 1922, dáin 21. júlí 2006) kaupkona. Hún átti síðar Bjarnhéðin Elíasson skipstjóra og útgerðarmann í Vestmannaeyjum. Maki 1 (26. febrúar 1966): Margrét Oddsdóttir (fædd 28. september 1945) kennari. Þau skildu. Foreldrar: Oddur Sigurbergsson og Helga Einarsdóttir. Maki 2 (13. desember 1970): Halldóra Filippusdóttir (fædd 17. febrúar 1941) flugfreyja. Foreldrar: Filippus Tómasson og Lilja Jónsdóttir. Dætur Árna og Margrétar: Helga Brá (1966), Þórunn Dögg (1968). Sonur Árna og Halldóru: Breki (1977).

Kennarapróf KÍ 1966.

Kennari í Vestmannaeyjum 1964–1965 og í Reykjavík 1966–1967. Starfsmaður Surtseyjarfélagsins með aðsetur í Surtsey sumar og haust 1966 og 1967. Blaðamaður við Morgunblaðið 1967–1991. Dagskrárgerðarmaður við Ríkisútvarpið og við Sjónvarpið frá stofnun þess.

Hefur unnið að margs konar félagsmálum í Vestmannaeyjum og víðar. Var formaður tóbaksvarnanefndar 1984–1988. Í stjórn Grænlandssjóðs 1987–2001, í flugráði 1987–2001, í Vestnorræna þingmannaráðinu 1991–2001, formaður þess um tíma. Í stjórn Norrænu stofnunarinnar á Grænlandi, NAPA, um árabil. Formaður byggingarnefndar Þjóðleikhússins 1988–2001 og formaður stjórnar Sjóminjasafns Íslands 1989–1992.

Alþingismaður Suðurlands 1983–1987, 1991–2001 og Suðurkjördæmis 2007–2013 (Sjálfstæðisflokkur).

Varaþingmaður Suðurlands febrúar–mars 1988, nóvember 1989, mars–apríl 1990, janúar–febrúar 1991 (Sjálfstæðisflokkur).

Fjárlaganefnd 1991–2001, samgöngunefnd 1991–2001 og 2007–2011 (formaður 1999–2001), menntamálanefnd 1991–2001, félagsmálanefnd 2007, félags- og tryggingamálanefnd 2007–2009, umhverfis- og samgöngunefnd 2011–2013.

Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins 1994–2001 og 2007–2013 (formaður 1996–2001).

Hefur skráð viðtalsbækur og bækur um gamanmál alþingismanna, skrifað hundruð greina í Morgunblaðið og önnur blöð, einnig samið svítu, sönglög og sungið og spilað eigin lög og annarra á hljómplötur.

Æviágripi síðast breytt 8. júní 2023.

Upplýsingar um nefndarstörf ná aftur til ársins 1991 (115. löggjafarþing). Sjá annars nefndasetur

Áskriftir