Fjölmiðlafólk í Alþingishúsinu

Starfsaðstaða fjölmiðlafólks er á 3. hæð þinghússins og í blaðamannastúku á þingpöllum. Því er frjáls aðgangur að anddyri og matsal í Skála, starfssvæði sínu á 3. hæð í Alþingishúsi og setustofu í Kringlu. Fjölmiðlum er hins vegar óheimill aðgangur að 2. hæð þinghússins utan gönguleiðar er tengir Alþingishús og Skála. Vilji fjölmiðlafólk ná sambandi við þingmenn biður það þingverði fyrir skilaboð.

Fjölmiðlafólk þarf að leita leyfis deildarstjóra þingvörslu eða staðgengils hans til ljósmyndatöku eða kvikmyndatöku af þingpöllum og úr hliðardyrum þingsalar. Ljósmyndatökur eru aldrei leyfðar inni í þingsal eða matsal, hvorki á þingfundartíma né utan hans. Sjá nánar reglur um aðgang og umgengni í Alþingishúsi og Skála.