Þingmálaskrá ríkisstjórnar

Við upphaf þings á, samkvæmt þingsköpum Alþingis, nr. 55/1991, þingmálaskrá að fylgja stefnuræðu forsætisráðherra en það er yfirlit um þau mál sem ríkisstjórn hyggst leggja fram áþinginu og áætlun um hvenær þeim verður útbýtt. 

Ákvæðið var fyrst sett í þingsköp árið 2007 og frá 2012 segir jafnframt að við upphaf vetrarþings, að loknu jólahléi, skuli afhenda forseta Alþingis endurskoðaða áætlun um framlagningu stjórnarfrumvarpa á vetrar- og vorþingi ásamt áætluðum útbýtingardegi.