Sigríður A. Þórðardóttir (andsvar):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. kirkjumrh. fyrir svör við spurningu minni og held þá áfram. Ef kirkjan veldi þá leið að leggja niður störf þá skapast væntanlega af því kostnaður, t.d. biðlaunaréttur og annað, og ég vil þá spyrja: Hver ætti þá að bera þann kostnað?