Forseti (Guðni Ágústsson):
Hér kom fram ósk frá hv. 5. þm. Vestf. um að þessari umræðu yrði frestað. Það er rétt sem hv. þm. sagði að bæði formaður og varaformaður umhvn. eru með fjarvistarleyfi í dag. Ég vil spyrja hv. þm. hvort svör ráðherra hafi verið fullnægjandi. --- Hv. þm. hristir höfuðið. Forseti frestar þá umræðu um þetta mál hér og nú.