Lánasjóður landbúnaðarins

Fimmtudaginn 15. maí 1997, kl. 10:59:28 (6577)

1997-05-15 10:59:28# 121. lþ. 127.3 fundur 424. mál: #A Lánasjóður landbúnaðarins# frv., PHB (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 127. fundur

[10:59]

Pétur H. Blöndal:

Herra forseti. Þrátt fyrir að þetta frv. sé liður í góðri þróun, þá er ég á móti því að stofna opinbera lánasjóði og viðhalda þeim. Ég er enn fremur á móti því að leggja skatta á fátæka bændur til að ríkir bændur geti fengið lán. Ég er á móti því að örva bændur til fjárfestinga sem ekki geta skilað arði. Ég segi nei.