Forseti (Sturla Böðvarsson):
Eins og tilkynnt hafði verið hefst nú utandagskrárumræða. Málhefjandi er hv. þm. Ágúst Einarsson. Til andsvara verður starfandi utanrrh., hæstv. landb.- og umhvrh. Guðmundur Bjarnason. Umræðan fer fram samkvæmt 1. mgr. 50. gr. þingskpa og stendur í hálftíma. Efni umræðunnar er framkvæmd GATT-samningsins.