Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson) (andsvar):
Herra forseti. Umræðan snýst um þann veruleika að málefni fatlaðra fá 190 millj. kr. meira á næsta ári en þau fengu í ár. Ég ræðst ekki til neinnar atlögu við málefni fatlaðra, síður en svo. Þetta er forgangsmálaflokkur í mínu ráðuneyti.