Schengen-samstarfið

Þriðjudaginn 17. desember 1996, kl. 17:43:08 (2324)

1996-12-17 17:43:08# 121. lþ. 47.94 fundur 145#B Schengen-samstarfið# (umræður utan dagskrár), KPál (ber af sér sakir)
[prenta uppsett í dálka] 47. fundur

[17:43]

Kristján Pálsson:

Herra forseti. Ég ætlaði ekki að orða þetta þannig til hv. þm. Steingríms J. Sigfússonar að saka hann um eitt eða annað og bið hann afsökunar á því ef hann hefur tekið þessu þannig, en aftur á móti vil ég ítreka að það sem tollyfirvöld á Keflavíkurflugvelli hafa sagt finnst mér vega mjög þungt í þeirri umræðu sem lýtur að því að reyna að stemma stigu við ólöglegum innflutningi eiturlyfja sem hafa skaðað ungmenni okkar um allt land og fleiri. Ég tek undir þær áhyggjur hv. þm. og ég vona að við eigum eftir að eiga góða umræðu um þetta mál saman.