2. FUNDUR
miðvikudaginn 2. okt.,
kl. 8.30 síðdegis.
Stefnuræða forsætisráðherra (útvarpsumræður).
Ræðumenn fyrir Sjálfstfl. voru Davíð Oddsson forsrh. í fyrri umferð og Sigríður A. Þórðardóttir, 3. þm. Reykn., og Sólveig Pétursdóttir, 5. þm. Reykv., í þeirri síðari. Fyrir Alþb. og óháða töluðu í fyrri umferð Margrét Frímannsdóttir, 5. þm. Suðurl., og Ögmundur Jónasson, 17. þm. Reykv., en í þeirri síðari Kristinn H. Gunnarsson, 5. þm. Vestf. Af hálfu Samtaka um kvennalista töluðu Kristín Ástgeirsdóttir, 14. þm. Reykv., og Guðný Guðbjörnsdóttir, 19. þm. Reykv., í fyrri umferð, en Kristín Halldórsdóttir, 12. þm. Reykn., í þeirri síðari.
Ræðumenn Framsfl. voru Finnur Ingólfsson iðnaðar- og viðskrh., Siv Friðleifsdóttir, 4. þm. Reykn., og Magnús Stefánsson, 3. þm. Vesturl., í fyrri umferð, en Guðni Ágústsson, 2. þm. Suðurl., í þeirri síðari. Af hálfu þingflokks jafnaðarmanna töluðu Rannveig Guðmundsdóttir, 5. þm. Reykn., Ágúst Einarsson, 11. þm. Reykn., og Sighvatur Björgvinsson, 4. þm. Vestf., í fyrri umferð, en Svanfríður Jónasdóttir, 6. þm. Norðurl. e., í þeirri síðari.
[23:27]
Fundi slitið kl. 23:29.
---------------