Þjóðlendur

Fimmtudaginn 05. febrúar 1998, kl. 14:17:40 (3473)

1998-02-05 14:17:40# 122. lþ. 60.2 fundur 367. mál: #A þjóðlendur# frv., JóhS (um fundarstjórn)
[prenta uppsett í dálka] 60. fundur

[14:17]

Jóhanna Sigurðardóttir (um fundarstjórn):

Herra forseti. Ég held að það sé óhjákvæmilegt að vekja athygli á því sem fram hefur komið, bæði í mínu máli og annarra hér, að frv. forsrh. og frv. félmrh. tengjast með ákveðnum hætti. En ég skil mætavel að framsóknarmönnum líði illa þegar verið er að rifja upp innihaldið í frv. hæstv. félmrh.