Eignarhald á auðlindum í jörðu

Fimmtudaginn 19. febrúar 1998, kl. 14:58:00 (4102)

1998-02-19 14:58:00# 122. lþ. 72.5 fundur 425. mál: #A eignarhald á auðlindum í jörðu# frv., ÁJ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 72. fundur, 122. lþ.

[14:58]

Árni Johnsen (andsvar):

Hæstv. forseti. Það er leitt að heyra að hv. 1. flm. frv. skuli ekki viðurkenna hið aulalega orðalag í þessu frv. Þarna er slök meðferð á íslensku máli. Ég nenni svo sem ekki að elta ólar við það. Ég vildi aðeins vekja athygli á þessu eina atriði hér í þessari umræðu. Það skiptir máli og veldur misskilningi eins og það er. Það mætti beinlínis túlka það öfugt við merkingu þess sé miðað við orð hv. 1. flm.