Forseti (Sturla Böðvarsson):
Áður en gengið er til dagskrár vill forseti geta þess að samkomulag er um að ljúka umræðu um fyrsta dagskrármálið, húsnæðismál, fyrir kl. 16 síðdegis. Þá verður tekið fyrir að því loknu annað dagskrármálið en síðan gengið til atkvæðagreiðslu um þau tvö dagskrármál. Að því loknu verða tekin fyrir önnur dagskrármál að öðru leyti en stefnt að því að ljúka fundinum fyrir kl. 19.00.