Ísólfur Gylfi Pálmason:
Herra forseti. Það er greinilegt að við göngum í takt í þessu máli, ég og hæstv. fjmrh., og ég treysti honum til þess að koma á fót þeirri nefnd sem var í téðri þáltill. minni og ég vonast til þess að útreikningarnir liggi fyrir eins fljótt og mögulegt er.