Forseti (Guðni Ágústsson):
Forseti vill upplýsa að hv. 2. þm. Vesturl., Sturla Böðvarsson, var í forsetastól og hafði þá fengið þau skilaboð sem hér hafa verið flutt. Hann er sjálfsagt í þeirri vinnu núna að ræða um framhald fundarins og bindur forseti vonir við það að samkomulag náist um það atriði.